Grýtubakki 22

109 Reykjavík | Fjölbýli
53.900.000 kr.
759 þ.kr./m2
2 svefnherbergi
1 baðherbergi
71 m2
Byggt 1968
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali
Ertu með einhverjar spurningar?
FastVest fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir:  Fallega 3ja herbergja íbúð á 2 hæð í Grýtubakka 22, á rólegum stað í Bakkahverfi í Breiðholti. Íbúðin telur 71 fm samkvæmt FMR og þar af 8,9 fm geymsla.  
*** FRÁBÆR FYRSTU KAUP ***
Skipulag íbúðar: forstofa, tvö svefnherbergi, eldhús, stofa, baðherbergi og svalir. Sérgeymsla er í sameign sem og hjóla/vagnageymsla.


Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og mikið skápapláss.
Barnaherbergi: Er Parketlagt með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Bað með sturtuaðstöðu, uppáhengt klósett, tengi fyrir þvottavél, hiti í gólfi og flísar.
Eldhús: Er með fallegri innréttingu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, helluborð í borðplötu og parket á gólfi.
Stofa: Með parketi á gólfi, út gengt úr stofu á svalir.
Geymsla: sér geymsla er í sameign.8,9fm.
Hjóla/vagnageymsla: Er í sameign. 
Garður. Sameiginlegur og snyrtilegur garður. Barnvænt umhverfi. 
Bílastæði. Næg bílastæði eru að öllu jöfnu fyrir utan fjölbýlishúisið. 

Endurnýjað innan íbúðar af fyrri eiganda. 
  • 2021: Skipt var um ofna og ofnalagnir að hluta til.
  • 2021: Gólf, parket, eldhús og hurðar
  • 2019/2020: Inn á baðherbergi var settur hiti í gólfið, lagðar niður flísar og skipt um klósett.
  • 2019/2020: Skipt um glugga og svalahurð.

Nýlegar framkvæmdir á eign að utan.
  • Gluggar endurnýjaðir 2019
  • Málað að utan árið 2020.
  • Hleðslustaurar fyrir 4 rafmagnsbíla fyrir utan blokkina 2020
  • Sameign máluð 2021

Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Öll þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying í göngufæri. Stutt í náttúruperlur við Elliðadal, Árbæjarsafn og svokallaðan Indíanaskóg þar sem finna má fallegar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

FastVest með þér alla leið

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

289.300 kr.

Stimpilgjald
215.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
69.900 kr.

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

194.617 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

202.834 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

212.172 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Grýtubakki 1
Grýtubakki 2
Grýtubakki 3
Grýtubakki 4
Grýtubakki 5
Grýtubakki 6
Grýtubakki 7
Grýtubakki 8
Grýtubakki 9
Grýtubakki 10
Grýtubakki 11
Grýtubakki 12
Grýtubakki 13
Grýtubakki 14
Grýtubakki 15
Grýtubakki 16
Grýtubakki 17
Grýtubakki 18
Grýtubakki 19
Grýtubakki 20
Grýtubakki 21
Grýtubakki 22
Grýtubakki 23
Grýtubakki 24
Grýtubakki 25
Grýtubakki 26
Grýtubakki 27
Grýtubakki 28
Grýtubakki 29
Grýtubakki 30
Grýtubakki 31
Grýtubakki 32