Gjaldskrá
Almennt um þóknun
Eftirfarandi gjaldskrá er leiðbeinandi um endurgjald fyrir þjónustu FastVest og gildir nema um annað hafi verið samið.
Skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði er samkvæmt samkomulagi milli aðila.
Umsýslugjald kr. 69.900 m. vsk. fast gjald sem kaupandi fasteignar greiðir fyrir þjónustu fasteignasölunnar s.s. við ráðgjöf og umsjón með þinglýsingu skjala.
Gagnaöflunargjald kr. 65.500 m. vsk. fast gjald sem seljandi fasteignar greiðir vegna öflunar gagna um eignina t.d. veðbókarvottorð, yfirlýsingu húsfélags, útvegun veðleyfa og annarra nauðsynlegra skjala.
Sé óskað eftir auglýsingum á netmiðlum eða í blöðum (umfram auglýsingum Homeed) þá greiða seljendur þann kostnað.
Höfum milligöngu um myndatökur unnar af fagmanni, seljandi greiðir og eignast myndirnar.