Lerkigrund 3

Björt 3ja herbergja íbúð 95,5 fm. ÚTSYNIS íbúð á 3. og efstu hæð í fjölbýlishúsi ásamt stórri geymslu í kjallara og suðursvölum.
Staðsett skammt frá Grundaskóla, leikskóla, íþróttahúsi, sundlaug og æðislegu ústýni.
Sameiginleg forstofa, flísar á gólfi, teppi á gólfi í stigagangi.
Lýsing eignar: Íbúðin er parketlögð forstofa, fataskápur, miðrými og stór stofa.
Eldhús, upphafleg innrétting "filmuð", flísar á gólfi og milli skápa.
Baðherbergi endurnýjað flísalagt með baðkari og góðri innréttingu.
Svefnherbergi skápar og parket, dyr út á svalir.
svefnherbergi parket á gólfi og skápur.
Í kjallara er rúmgóð sér geymsla með góðum gluggum, auk þess er sameiginleg snyrting í kjallara. Sameiginlegt þvottaherbergi (hver með sína vél) og hjólageymsla.
Blokkin að utan
- Endurnýjað 2016: Neysluvatnslagnir.
- Endurnýjað 2017-2019: skipt um gler, glugga,svalahurð og einangrun og klæðningu á suðurhlið.
- Endurnýjað 2020: skipt um teppi á stigagangi og hann málaður.
- Endurnýjað 2021: klæðning og einangrun á báðum göflum hússins.
- Endurnýjað 2024: skipt um gler, glugga og einangrun og klæðningu á norðurhlið
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
FastVest með þér alla leið
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
303.700 kr.
- Stimpilgjald
- 230.000 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- 69.900 kr.
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
216.381 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
237.299 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
153.343 kr.
Verðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Arion banki
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Arion lánar að 80%, eða 85% við fyrstu kaup. Verðtryggð lán eru að 70% veðsetningu og til mest 30 ára.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 3. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir




























