Suðurgata 93

Staðsett miðsvæðis í bænum, skammt frá Sementsreitnum. Stutt í alla helstu þjónustu, ss. skóla.
Útivistarperlan Langisandur er í næsta nágrenni.
Björt og falleg nýbygging í fjögurra íbúða húsi á 2 hæðum og risi.
Hæð 82,5 fm og ris 71,4 fm. samtals 153,9 fm. Steypt bílastæði.
Hæð:
Sér inngangur á annarri hæð. Forstofa með fataskáp.
Hol, þaðan er stigi uppí risið.
Svefnherbergi með góðum skápum.
Góð stofa, dyr útá svalir.
Baðherbergi með flísar á gólfi og veggjum, innréttingu og sturtu. Þvottaaðstaða: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting.
Ris:
Stigi uppí ris með teppalögðum þrepum.
Stórt opið samveruherbergi, dyr útá svalir.
2 stór svefnherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi með innréttingu og baðkari. Tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og kringum baðkar.
Gólfefni:
Vinilparekt á gólfum, nema í baðherbergjum, þar eru flísar.
Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 846-4144
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
FastVest með þér alla leið
Sæki nálæga staði…
Áætlaður kaupkostnaður
433.300 kr.
- Stimpilgjald
- 359.600 kr.
- Lántökugjald
- 0 kr.
- Þinglýsing skjala
- 3.800 kr.
- Umsýslugjald
- 69.900 kr.
Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.
Lánareiknivél
Fyrsta greiðsla
324.602 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
338.307 kr.
Óverðtryggt
Fyrsta greiðsla
353.882 kr.
Óverðtryggt
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn
0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.
Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.
Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.
Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.
Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026
Fleiri myndir




































