Lóuflöt 4

311 Borgarbyggð | Einbýli
85.900.000 kr.
541 þ.kr./m2
3 svefnherbergi
1 baðherbergi
158.7 m2
Byggt 2022
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Ragnheiður Rún Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali
Ertu með einhverjar spurningar?
FastVest fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: virkilega fallegt, vel skipulagt 158,7 fm einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr á frábærum stað við Lóuflöt 4, Hvanneyri, Borgarbyggð.   Hús í "sveitasælunni" með 812 fm lóð.

Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 117,8 fm auk 40,9 fm bílskúrs.   Bókið einkaskoðun


Staðsett í ört stækkandi þéttbýliskjarna á Hvanneyri með mikið útsýni og mikla nálgun við náttúruna.
Um 285 manns* búa á Hvanneyri allt árið en bæjarbúar fara yfir 600+ þegar Landbúnaðarháskólinn er í gangi.
Leikskólinn Andabær og Grunnskól fyrir 1-5 bekk eru í hverfinu.  Stutt á strætisvagnastöð.

Á Hvanneyri gerast góðir hlutir, börnin leika sér úti, nágrannar spjalla saman. Í göngu ferð um bæinn getur þú rekist á hesta, beljur, hænur, hunda og ketti. Einstakt fuglalíf er á Hvanneyri og glæsileg náttúra. Yndislegt sveitalíf allt í kring.

Nánari lýsing. Hús byggt 2022
Forstofan er rúmgóð með flísalögðu gólfi og hengi
Stofa og Eldhús mynda eitt stórt alrými.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á timburverönd með skjólveggjum.
Eldhús með fallegr hvítri innréttingu með, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð, innbyggður ísskápur parket á gólfi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, "walk-in sturta", falleg innrétting, upphengt salerni og dyr út á stóra timburverönd með heitum potti.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi með góðum skápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fatakáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Möguleiki að bæta við fjórða herberginu í enda bílskúrs.
Þvottahús er innaf svefnherbergisgangi með flísalögðu gólfi og góðri innréttingu með skolvaski og vélum í vinnuhæð.
Bílskúr með heitt og kalt vatn. gönguhurð, geymsluloft er yfir bílskúr.  (Möguleiki að bæta við herbergi í endabílskúrs)  
Fljótandi parket á herbergjum og alrými, gólfhiti í öllu húsinu, stétt að framan kynt með affalli.

Lóuflöt er á Hvanneyri í ört vaxandi byggðarkjarna í Borgarbyggð, Hvanneyri er staðsett í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Borgarnesi.
Á Hvanneyri er stór og fallegur leikskóli sem gengur undir nafninu Andabær og eru í honum þrjár deildir, Goðheimar, Hulduheimar og Álfheimar. Grunnskóli er á Hvanneyri og fer fram kennsla fyrir 1-5 bekk en 6-10 bekk fer fram á Kleppjárnsreykjaskóla og er skólabíl fyrir þá nemendur. Menntaskóli er einungis um 10mín frá en hann er staðsettur í Borgarnesi. Landbúnaðarháskóli Íslands er lítill háskóli sem einnig markar honum sérstöðu.


Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.  Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

FastVest með þér alla leið

Sæki nálæga staði…

Áætlaður kaupkostnaður

417.300 kr.

Stimpilgjald
343.600 kr.
Lántökugjald
0 kr.
Þinglýsing skjala
3.800 kr.
Umsýslugjald
69.900 kr.

Stimpilgjald áætlað sem 0,4% af kaupverði.

Lánareiknivél

kr.
kr.

Fyrsta greiðsla

310.159 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 1

Fyrsta greiðsla

323.254 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 2

Fyrsta greiðsla

338.137 kr.

Óverðtryggt

Greiðslufyrirkomulag, samanburður 3
Forsendur og vaxtaupplýsingar · Landsbankinn

0% er hlutlaus reikniforsenda, ekki verðbólguspá. Fyrsta greiðsla miðast við einn mánuð frá lántöku. Lántöku-, greiðslu- og þinglýsingargjöld eru ekki innifalin. Þetta er áætlun en ekki greiðslumat eða lánstilboð.

Verðtryggð lán eru aðeins í boði við fyrstu kaup, til 20 ára og að 85% veðsetningu. Óverðtryggð lán ná að 80%, eða 90% við fyrstu kaup.

Veðhlutfall hér miðast við kaupverð. Mat bankans á veðvirði getur verið lægra og breytt kjörum. Vextir geta breyst eftir fastvaxtatímabil; verðtrygging getur hækkað höfuðstól og greiðslur.

Vaxtatafla gildir frá 1. september 2026. Yfirfarið 8. september 2026.

Áætluð fyrsta greiðsla án gjalda · Vextir yfirfarnir 8. september 2026

Fleiri myndir

Lóuflöt 1
Lóuflöt 2
Lóuflöt 3
Lóuflöt 4
Lóuflöt 5
Lóuflöt 6
Lóuflöt 7
Lóuflöt 8
Lóuflöt 9
Lóuflöt 10
Lóuflöt 11
Lóuflöt 12
Lóuflöt 13
Lóuflöt 14
Lóuflöt 15
Lóuflöt 16
Lóuflöt 17
Lóuflöt 18
Lóuflöt 19
Lóuflöt 20
Lóuflöt 21
Lóuflöt 22
Lóuflöt 23
Lóuflöt 24
Lóuflöt 25
Lóuflöt 26
Lóuflöt 27
Lóuflöt 28
Lóuflöt 29
Lóuflöt 30
Lóuflöt 31
Lóuflöt 32
Lóuflöt 33
Lóuflöt 34
Lóuflöt 35
Lóuflöt 36
Lóuflöt 37
Lóuflöt 38
Lóuflöt 39
Lóuflöt 40
Lóuflöt 41
Lóuflöt 42
Lóuflöt 43
Lóuflöt 44
Lóuflöt 45
Lóuflöt 46
Lóuflöt 47
Lóuflöt 48
Lóuflöt 49
Lóuflöt 50
Lóuflöt 51
Lóuflöt 52
Lóuflöt 53
Lóuflöt 54
Lóuflöt 55
Lóuflöt 56
Lóuflöt 57
Lóuflöt 58
Lóuflöt 59
Lóuflöt 60
Lóuflöt 61
Lóuflöt 62
Lóuflöt 63
Lóuflöt 64
Lóuflöt 65