Álfkonuhvarf 45, Kópavogur
Verð: 45.900.000
Álfkonuhvarf 45, íbúð 301, ásamt stæði í bílgeymslu.
Staðsett stutt frá allri þjónustu, heilsugæslu, verslun, skóla og leikskóla. Fallegt útsýni.
105,4 m2, 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð ásamt sér geymslu í kjallara og STÆÐI Í BÍLGEYMSLU
Íbúðin skiptist í : Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og sér geymslu í kjallara.
Forstofan er rúmgóð, fataskápur nær upp í loft, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi og barnaherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, baðkar, sturta, gluggi.
Þvottaherbergi er innan íbúðar, borð, vaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Stofa, parket á gólfi og útgengi út á stórar flísalagðar svalir, 15 fm.
Eldhús, flísar á gólfi, HTH innrétting, AEG eldhústæki, uppþvottavél fylgir ekki.
9,9 m2 geymsla í kjallara er innifalin í flatarmáli íbúðar.
Í sameign er vagna og hjólageymsla. Fótboltavöllur og leiktæki á lóðinni.
Hússjóður 17.432 mánaðarlega Bílgeymsla 6.822 annan hvern mánuð