KVÍAHOLT 15

  • Verð: 45.500.000 kr.
  • Brunabótamat: 71.340.000 kr.
  • Fasteignamat: 34.850.000 kr.
  • Áhvílandi: 0 kr.
  • Staðsetning: 310
  • Stærð: 286.0 m2
  • Herbergi: 7
  • Svefnherbergi: 5
  • Stofur: 2
  • Baðherbergi: 2
  • Þvottahús:
  • Bílskúr: 34.3
  • Hitaveita:
  • Búsetuform: Einbýlishús
  • Byggingarár: 2007
  • Inngangur: Sérinngangur
Fleiri myndir

Lýsing

Kvíaholt 15, Borgarnesi

Til sölu á góðum útsýnisstað í Borgarnesi, nýtt einbýlishús m/innbyggðum bílskúr og samþykktri aukaíbúð. Húsið er í dag með tveimur samþykktum íbúðum sem unnt er að breyta í einbýli með 7 svefnherbergjum og tveimur stofum. Við húsið eru þrjú til fjögur bílastæði.

Aðalíbúð er 4ra herbergja með sérinngangi ásamt bílskúr sem er innangengt í frá forstofu. Efri hæð er byggð úr timbri með klæðningu í brunaflokki 1 (sami flokkur og steypa). Við inngang íbúðar er timburverönd. Skipulag íbúðar er þannig: Forstofa með hvítum skápum, eldhús með rúmgóðri sprautulakkaðri innréttingu. Stofa og borðstofa eru í einu rými og þaðan er útgengt á stórar svalir. Baðherbergi með sturtu og hvítri innréttingu og gert ráð fyrir baði. Þvottahús með vaskaskáp, geymsla og þrjú rúmgóð svefnherbergi með hvítum skápum. Öll gólf eru flísalögð nema svefnherbergi sem eru með lökkuðum gólfum og bílskúr. Loft eru tekin upp í holi, stofu, borðstofu og eldhúsi. Allar innihurðar eru hvítar. Engin klæðning er í lofti í bílskúr sem er ómálaður. Rafmagnsopnari er ótengdur og fylgir. Hiti er í gólfum.

Á neðri hæð er 3ja herbergja samþykkt aukaíbúð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í forstofu með fatahengi, eldhús með hvítri innréttingu, stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sturtu, geymslu og tvö góð svefnherbergi með skápum. Flísar á öllum gólfum (hitalögn).

Húsið er frágengið að utan, rennur, niðurföll og þakskyggni komið. Lóð er ófrágengin og möl í bílaplani.

Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari upplýsingar veitir Soffía í síma 846-4144 eða netfang fastvest@fastvest.is.