Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: Lækjarmelur, Hvalfjarðarsveit. Staðsett í þyrpingu ca. 15 km frá Akranesi. Skipti mögul. á eigni í Reykjavík eða Akranesi. TILBOÐ Gjaldfrjáls leikskóli frá kl. 9-15.
Forsteypt einingahús frá Smellinn.
188,8 fm íbúð og 42,3 fm bílskúr á einni hæð. Möl í bílaplani, grófjöfnuð lóð.
Íbúð: Forstofa, flísar á gólfi, skápur. 2 herbergi við forstofu, annað stórt en hitt töluverð minna (teiknað sem geymsla) hægt að nýta bæði sem svefnherbergi. 3 herbergi í svefnherbergisálmu, fataherbergi í hjónaherbergi. Forstofuherbergi er flísalagt en öll önnur herbergi, ásamt stofu, gangi og holi eru með plastparketi (vantar gólflista og sólbekki). Eldhús, flísar á gólfi, hvít sprautulökkuð innrétting, tvöfaldur bakaraofn, annar blástursofn. Uppþvottavél fylgir (elba) Gaseldavél. Baðherbergi er í svefnherbergisálmu, flísar á gólfi og veggjum, Hornbaðkar, sturta, hvít innrétting. Innangengt í þvottaherbergi, góðar innréttingar, flísar á gólfi. Dyr út á ca. 65 fm. steypta verönd með góðum skjólvegg. Ryksugukerfi. Bílskúr, flísar á gólfi, sjálfvirkur opnari, 3ja fasa rafmagn góð geymsla.
Þakjárn málað (innbrennt) Hitalögn í gólfi.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari uppl. veitir Soffía í síma 846-4144 eða email: soffia@fastvest.is