Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: Garðabraut 45, Akranesi
Endaíbúð á 1. hæð í fjölbýli.
Mjög góð staðsetning m. tilliti til skóla og íþróttamannvirkja. Sér inngangur af svölum. Forstofa, skápur. Flísar á forstofu og í gangi. Geymsla, dúkur á gólfi, hillur. Baðherbergi, linoleumdúkur á gólfi, viðarinnrétting, baðkar. Þvottaherbergi innaf baðherbergi, hillur, barki fyrir þurrkara, snúrur. Eldhús, ný innrétting úr birki, Teba veggofn, keramik helluborð og vifta, flísaþiljur milli skápa. 3 svefnherbergi, skápar í tveimur, plastparket í öllum. Stofa, plastparket á gólfi, dyr út á svalir, búið að stúka af herbergi í stofunni, (ekki talið með í herbergjafjölda íbúðarinnar). Innihurðir nýl. endurn. Gler endurn í svalahurð og hjónaherbergi. Nýjir gluggar og gler í barnaherb. og baðherb. Sér geymsla 21,2 m2 í kjallara, innifalin í flatarmáli íbúðar. Sameiginleg hjólageymsla og þurrkherbergi í kjallara. Malbikað bílaplan.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari uppl. veitir Soffía í síma 846-4144 eða email: fastvest@fastvest.is