Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: KIRKJUBRAUT 12 , 4 HÆÐ
ÚTBORGUN 1.000.000,- OG ÁHVÍLANDI LÁN YFIRTEKIÐ
SKIPTI MÖGULEG Á EINBÝLISHÚSI Á SAMA VERÐI EÐA ÓDÝRARA
Möguleiki á yfirtöku góðum ÍLS lánum 21,4 mill., greiðslubyrði á mán 90 þús. Nýleg og stórglæsileg 90,7 fm íbúð á fjórðu hæð auk stæðis í bílskýli. Íbúðin er í lyftuhúsi á vinsælum stað í miðbæ Akraness.
Anddyri íbúðar: flísar á gólfi, stórir og góðir skápar. Eldhús: Eikarinnrétting, flísar á milli skápa, AEG eldhústæki, keramikhelluborð. Baðherbergi: eikarinnrétting, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu. 2 stór og góð herbergi fataskápar og sjónvarpstengi í þeim öllum. Stofa er opin og afar rúmgóð myndar alrými með eldhúsi, dyr útá 10,6 fm svalir. Þvottahús: Flísar á gólfi, gott vinnuborð með vaski og góðar snúrur. Öll gólfefni íbúðar eru úr eik nema annað sé tekið fram, hurðar, og innréttingar eru einnig úr eik. Sérgeymsla er í kjallara (7,0 fm innifalið í heildarfm. íbúðar, hillur fylgja ekki).
Öll sameign er afar snyrtileg (þrif keypt út), stigagangur flísalagður og bílastæði fyrir utan hellulagt eða steypt. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari uppl. veitir Soffía í síma 846-4144 eða email: fastvest@fastvest.is