Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: Einstaklega björt og opin 3ja herb. íbúð á efstu hæð í fjögurra íbúða stigagangi í hinu eftirsótta Ásahverfi í Garðabæ. Húsið er staðsett í rólegu, góðu hverfi þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu.
Frábært útsýni og sérinngangur með yfirbyggðum stigagangi í íbúðina. Í anddyri eru ljósar flísar á gólfi og segja má að stofurnar séu tvær með opnu eldhúsi inn í aðra stofuna. Stofurnar, ásamt rúmgóðu svefnherbergi, eru parketlagðar. Búr er inn af eldhúsinu. Baðhergergið er flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús til staðar í íbúðinni. Þar er flísalagt svo og á svölum.
Semja má um að innbúið fylgi með í íbúðarkaupunum (s.s.rafmagnstækin; þvottavél, þurrkari, ísskápur, uppþvottavél, húsgögn, loftljós, málverk) þannig að kaupandi geti flutt inn án mikillar fyrirhafnar. Góð bílastæði fyrir utan húsið, sem er innst í botnlanga og hiti í gangstétt. Sameign með hjóla og vagnageymslu. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Falleg eign á frábærum stað í Garðabæ.
Nánari upplýsingar veitir Soffía í síma 846-4144, Soffia@fastvest.is
Allar upplýsingar eru fengnar úr opinberum gögnum eða frá seljendum.