Lýsing
Fasteignamiðlun Vesturlands kynnir: Höfðabraut 5. Snyrtileg 120 fm 4ra herb íbúð á þriðju hæð til vinstri, ásamt 27,5 fm bílskúr. Alls eru 6 íbúðir í húsinu, eigninni hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina. Staðsetning skammt frá m.a Grundaskóla og Jaðarsbökkum svo eitthvað sé nefnt. Möguleiki er á yfirtöku lána.(Kaupþing)
Eldvarnarhurð er fyrir íbúð. Svefnherbergi eru 3, stór og góður fataskápur er í einu þeirra, dúkur er á 2 þeirra og plastparket á einu. Eldhús: gömul innrétting, AEG eldavél ágætis borðkrókur. Baðherbergi: flísar á gólfi, flísaþiljur á veggjum, hvít innrétting. Þvottaherbergi: hillur, skápar og geymsluaðstaða. Stofa er afar rúmgóð, útgengi á suðursvalir. Góflefni á stofu, sjónvarpsholi og herbergjagangi er plastparket.
Annað: Rúmlega ársgamalt gler í suður og vestur hlið. Steinn og tréverk málaðað utan sumar 2007. (allt nema gluggar á norðurhlið.) Sameign stórlega endurbætt 2005 nýtt teppi, flísalagt einnig settur nýr dyrasími. Hús klætt með steni og þakjárn endurn. c.a 95. Malbikað bílaplan. Sameiginleg geymsla þar sem áður var ruslageymsla.
Bílskúr: frágenginn, rafmagn, heitt og kalt vatn, skápar og hillur, geymsla í enda.
Nánari upplýsingar veitir Soffía í síma 846-4144, Soffia@fastvest.is
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.